Brot úr útskriftaræðu sem ég hélt sem formaður nemendarfélags Snælandsskóla.
Kæri skólastjóri, kennarar, nemendur og aðrir gestir...Loksins er komið að því. Tíu ára veru okkar hér, er nú lokið. Í þessari stofnun höfum við einfaldlega stækkað, þroskast, eignast góða vini og lært. Það er að segja undirbúið okkur fyrir lífið, allt þetta í þessum stóra pakka er alls ekki öllum stofnunum fært að framkvæma. En auðvitað skulum við hugsa um eitt að þetta hefði ekki gerst ef að við hefðum ekki okkar yndislegu starfsmenn. Ásdís og Broddi þið hafið haldið okkur í formi, stutt okkur í gegnum vatnshræðslu við eigum eftir að hugsa til ykkar þegar við syndum út í lífið og skokkum í gegnum framtíðina. Basli takk fyrir að halda uppi kímnigáfunni eins og oft er sagt fallegsta blóm jarðarinnar er brosið. Valborg rød grød med flødeskum verður sennilega seint sagt rétt en mun þó alltaf vera í minninugm okkar. Sigurður Haukur teikni- og leikhæfileikarnir munu svo sannarlega nýtast okkur í framtíðinni. Ásta og Haukur foreldrar bekjanna þið hafið komið fram við okkur eins og ykkar eigin börn. Ásta þú ert eins og persónuleg sögn í íslensku þú hefur áhrif á okkur sem kennari og traustur vinur. Haukur þú ert eins og algebra. Óútreiknanlegur sem að maður stundum skilur ekkert í en eins og þú hefur oft sagt; algebra er yndisleg. Svo eru það blessuðu gangaverðirnir og konurnar í matsölunni sem hafa þurft að þola sóðaskapinn í okkur og gefið okkur að borða. Takk! Svo er það sjálf skólastýran, ef að hún væri ekki á staðnum mundu sennilega ekki allir hlutir ganga upp. Það er hún sem heldur utan um allt heila batteríið. Allir þeir hinir í þessari stofnun sem hafa komið af mótun okkar er þakkað kærlega fyrir gott starf. Takk fyrir að umbera okkur. Því eins og allir vita erum við aðeins börn og börn eru ekki alltaf ein blessun. Nestið frá Snælandsskóla á eftir að nýtast okkur vel í framtíðinni. Vegni ykkur vel. Takk fyrir allt
Hahah vá hvað þetta er fyndið,
Hversu steiktur var maður!!!!
Hinn týndi partur úr ræðunni er ekki internetshæfur.
Kveðja Nilla
16. maí 2006 klukkan 19:42
Erna Niluka Njálsdóttir
Erna Niluka Njálsdóttir